Fólkið okkar

 

Skúli Sveinsson, landsréttarlögmaður

Skúli Sveinsson hefur málflutningsréttindi fyrir Landsrétti.  Hann hefur BA og meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík ásamt því að hafa lokið Cand. oecon gráðu frá Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands af fjármálasviði.  Auk málflutningsstarfa hefur hann sinnt stjórnunarstöfum á fjármálamarkaði og stafað hjá vátryggingafélagi.  Hann hefur setið í stjórnum opinberra stofnanna, s.s. Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN).  Skúli var skipaður formaður vinnuhóps um eftirlitsstofnanir á vegum Forsætisráðuneytisins árið 2014 og sat jafnframt í nefnd til endurskoðunar á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna.  Skúli hefur sint réttargæslu fyrir hælisleitendur á vegum Rauða kross Íslands, auk þess sem hann var ritstjóri félags viðskiptafræðinema.  Hann var tilnefndur til nýsköpunarverðlauna forseta Íslands árið 2002.

skuli@logvernd.is / 894-0540

 

Andri B. Arnþórsson, lögfræðingur

Andri Björgvin Arnþórsson er lögfræðingur.  Hann hefur hlotið BS gráðu í viðskiptalögfræði ásamt því að hafa lokið meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum á Bifröst.  Auk lögfræðimenntunar er Andri viðurkenndur samninga- og sáttamiðlari hjá Sátt, félagi sáttamiðlara á Íslandi.  Utan lögfræðinnar hefur hann setið ýmis námskeið, m.a. í gæðastjórnunarstaðlinum ISO 9001:2015,  samninga- og sáttamiðlun sem og  námskeið fyrir stjórnendur.  Hann hefur setið í yfirkjörstjórn alþingiskosninga, tekið að sér aðstoðarkennslu í stærðfræði og verið leiðbeinandi í alþjóðlegum nýsköpunarhraðli á sviði lögfræði.

andri@logvernd.is / 775-9077

 

Sveinn Skúlason, lögmaður

Sveinn Skúlason er lögmaður með áratuga reynslu af málflutningsstöfum.  Lauk prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1972 og öðlaðist lögmannsréttindi árið 1979.  Sveinn er jafnframt með menntun á sviði sáttamiðlunar og rekstrar.  Auk málflutningsstarfa hefur hann starfað hjá Starfsmannafélagi ríkisstofnana, Lögreglustjóraembættinu í Reykjavík ásamt því að hafa verið framkvæmdastjóri Félags fasteignasala um árabil.

sveinn@logvernd.is / 892-4716